Mmm namm! Ég bjó til jarðarberjatertu í gærkvöldi (sá uppskriftina hjá Súper-S). Þetta var smá moj til að byrja með, en hafðist. Ég leyfði kökunni að stífna í ísskápnum í nótt og smakkaði svo á henni núna í hádeginu og vá hvað hún er góð! Hver gæti trúað því að kökubotn sem er mestmegnis úr rifnum kúrbít geti verið góð. Þetta kom sér líka sérstaklega vel þar sem verið var að bjóða upp á einhverja svakalega súkkulaðiköku og ís í vinnunni í morgun. Það kom mér líka skemmtilega á óvart þegar ég fann að mig langaði bara ekkert í þessa súkkulaðiköku.
Ég finn núna að ég er að komast á mjög gott skrið. Ég er farin að fá nett kikk út úr því að vera “the healthy person”, alltaf mætt með grænmetið mitt og sykurlausu desertana. Svo er vatnsflaskann næstum samgróin við vinstri höndina. Þegar þessi fílingur er kominn líður mér eins og ég geti allt. Mér finnst þetta ekkert mál og bara gaman. Mér líður eins og að með hverjum degi sem líður bæti ég aðeins við undirstöðurnar með því að vera stabíl og heiðarleg við sjálfa mig. Ég er hætt að hugsa “Ef kemst í kjörþyngd” og farin að hugsa “ÞEGAR ég kemst í kjörþyngd.” Með smá tíma, þolinmæði og stöðugleika gerist þetta bara hægt og rólega
.
Gaman að lesa bloggið þitt

Þú getur þetta og ert með rétta hugarfarið.
Eins og þú seigir þolinmæði og þrautseigja er allt sem þarf og þetta kemur allt með tímanum en hann verður að fá að vinna með okkur
Ekki bættum við þessu á okkur á einum degi!! ;P
Glæsileg hugafar!!!
EInmitt!! Frábært að þér líður svona vel og þetta tekst með jákvæðu hugarfari
Bara að taka einn dag í einu og þá safnast þeir saman eins og maurar í mauraþúfu (eða eitthvað
….Gangi þér svona vel áfram!