Vigtunin í dag sýndi -1.3 kg og þar með -17.3 kg í heildina. Við þetta náði ég markmiðinu mínu að vera hálfnuð með heildarmissinn 5. des 2007. Eftir 8 daga er ákkúrat hálft ár frá því ég byrjaði í ddv og því frábært að ná þessu takmarki áður en sá áfangi kemur. Planið er að ná í kjörþyngd á nákvæmlega 1 ári, þ.e. útskrifast í kjörþyngd fyrir 14. júní 2008.
Nú stefni ég á 1,3 næstu tvær vikur til þess að ná -20 kg fyrir jól. Ef það gengur ekki… þá verður bara að hafa það. En ég ætla að stefna mjög fast að því til þess að komast allaveganna eins nálægt því og ég get!
Já! Og núna er ég loksins LOKSINS komin í nýjan tug!
Æðislegt. Til hamingju með þennan frábæra árangur.
Frrrrráááábært
Innilega til hamingju. Rosalega stenduru þig vel
Til hamingju skvís
Stórglæsilegt hjá þér!
Bara komin í áttatíu og eitthvað! Hljómar ótrúlega vel sko! Til hamingju með þetta skvísa.
Vííí…
Glæsilegt!! Til hamingju!