Nokkuð margt er framundan á næstu dögum. Um helgina flyt ég til Keflavíkur! (Stúdentagarðar). Þetta hefur samt engin áhrif á DDV því ég kem daglega í bæinn til að fara í skólann og slíkt. Á mánudaginn byrjar skólinn aftur á fullu og á mánudaginn opnar líka nýja Hreyfing sem ég hlakka MIKIÐ til að fara í
Markmiðið mitt núna er að passa vel upp á matarræðið meðan ég stend í þessum flutningum og svo að sjálfsögðu að ná góðri tölu niður í næstu vigtun. Héðan í frá mun ég fara á fundi á þriðjudögum í hádeginu af því miðvikudagarnir ganga ekki lengur út af fyrirlestrum.
Svo er eitt próf framundan upp úr miðjum janúar… Semsagt virkilega nóg að gera og svo bætist við flakk milli RVK og KEF. En þá er bara að skipuleggja sig vel
Ú mín bara að flytja á Keilissvæðið!
Mágkonur mínar búa þarna og láta vel af. Ég myndi persónulega aldrei nenna þessu stanslausa rúnti en það er víst orðið hægara sagt en gert að leigja í Reykjavíkurborg…
Gangi þér vel með flutningana og alles.
úfff varð þreytt á að lesa þetta blogg
um að gera að passa sig svo förum við saman í vigtun á þriðjudögum og pulsum okkur upp
Til hamingju með nýju híbýlin

Sé að þér gengur bara vel, hef ekkert fylgst með í ca mánuð en fylgist framvegis með
GAngi þér áfram svona vel skvísa!
kv
Mimzy
Oft er bara gott að skipta um gír í lífinu þá gemur ný orka í allt saman hjá manni, gangi þér vel að flytja. ferðu í vigtun í Garðabæ eða Hreyfigreyningu? ég er nebblega að mæta í fyrstu vigtunina mína á þri í hád í Hreyfigreiningu
Ég fer alltaf í Garðabæinn:)… Bara vanadýr :p
OK er mikið að velt þessu fyrir mér, þ.e. hvert sé best að fara