Lokamarkmið fyrir útskrift?

15 02 2008

Ég ætla að reyna eins og ég geeeeeeet að ná “loka”markmiðinu mínu fyrir útskriftina 14. júní. Það er ennþá fræðilega hægt en til þess þarf ég að missa að meðaltali 0,9 kg á viku. Ég er búin að setja upp plan fyrir næstu 17 vikur (semsagt 17 vikur í útskrift) og búin að “ákveða” hvað ég ætla að missa mikið hverja viku. Núna stefni ég á að missa 1,5 kg í næstu viku og ná þar með -21 kg. Ég ætla bara að einblína á þetta núna viku fyrir viku. Á næstu 17 vikum mun ekkert komast að hjá mér annað en næsta vikumarkmið. Ég hef framsetninguna á síðunni samt ennþá á 5 kg-fresti en hef hitt skjalið fyrir sjálfa mig. Ég er þó búin að ákveða að eftir hverja vigtun kíki ég á næsta vikumarkmið og skrifa það hér á bloggið :) Vikumarkmiðin eru á bilinu 0,7 – 1,5 kg. Næstu tvær vikur stefni ég á 1,5 kg en svo verða þetta tölur á bilinu 0,7-1,0 kg. Það er mjög stíft að ætla sér þetta, en samt ekki óraunhæft.

Hvernig sem fer þá ætla ég að stefna eindregið á þetta.  Ef svo fer að ég næ þessu ekki alveg er ég samt viss um að ég hef komist lengra heldur en ef ég hefði sett slakari markmið!


Actions

Information

13 responses

15 02 2008
mjona

Mér líst vel á þetta markmið…enda er þetta alveg raunhæft ef vel gengur. þeir segja alltaf í skólanum að það sé betra að hafa markmiðin stór (verða samt að vera gerleg) heldur en of litil

15 02 2008
Rakel

Flott hjá þér að setja þetta svona niður
Þú átt alveg góðan möguleika að ná þessu :)
Líka góð hugsun hjá þér að ef þetta tekst ekki þá hefur alla vega náð lengra en annars, ég trúi því vel!

Gangi þér vel og ég hlakka til að fylgjast með þér ná hverju markmiðinu á fætur öðru :)

15 02 2008
Dídí

Ég held að þú náir þessu alveg. :) En þú varst að tala um í fyrri færslu að þú héldir að líkaminn gæti kannski verið að staðna í sömu brennslunni. Held að það gæti alveg verið málið! Finnst að þú ættir að vera að lyfta 3x í viku og svo taka brennslu inn á milli. Kannski væri líka sniðugt að breyta um prógrömm (eins og þú ert að gera), skipta um tæki, eða jafnvel prófa að fara út að labba!

En svo finnst mér flott hjá þér að halda í þá hugsun að þótt þú náir ekki markmiðinu þá verðurðu samt komin svo ofsalega nálægt því. :) Þú átt eftir að útskrifast með stæl. :D

15 02 2008
Þuríður

Þú getur alveg náð þessum markmiðum þínum ef þú virkilega ætlar þér það :D

16 02 2008
Snæja

Hæhæ! Ég er ný í átaksbloggheiminum og væri til að fá lykilorð á myndirnar hjá þér :) Ég vona líka að það sé í lagi að ég linkaði á þig ;)

16 02 2008
vinkonan

Hæhæ. Ég er í sömu hugleiðingum og þú. Þarf að setja markið hátt og ætla að vera búin að missa 15 kg. í endaðan maí! Er kannski með smá forskot því ég er með barn á brjósti og þeir segja sem þekkja til að það sé líkamsrækt úf af fyrir sig;)

Gangi þér rosalega vel með þetta:o)

16 02 2008
15kg

Til hamingju með árangurinn.
Ég er ný í átaksbloggheimum og hef verið að skoða síður hjá þér og öðrum. Held að svona síða geti veitt mér visst aðhald.
Þú mátt bæta mér á tenglalistann ef þú vilt.

Gangi þér vel.

16 02 2008
15kg

Kannski skemmtilegra að hafa linkinn: http://15kg.wordpress.com/

17 02 2008
nyrlifstill

Þú ættir alveg að geta þetta, ef þú leggur alla fram! :)
Hvar ertu annars að æfa? Ég var einhvern tíman með lykilorð á myndasíðuna þína (búin að týna því) en ég var alveg viss um að ég hefði séð þig í ræktinni um daginn, gæti vel verið eitthvað rugl í mér samt :)

17 02 2008
Búría

Þetta er alveg gerlegt, stíft, en vel gerlegt. Ég þarf eiginlega að gera þetta líka ef ég ætla að ná niður í 70 kg í maí.

18 02 2008
MjónaN

hæ hæ hef verið að fylgjast með þér hér. Alveg sammála með markmiðin, þetta er gerlegt og um að gera að setja sér stærri markmið en minni:) allavega meðan maður brýtur sig ekki niður ef þeim er svo ekki náð sem þú greinilega gerir ráð fyrir.
Annars langar mig að bæta við að ef þú stendur í stað í brennslu er um að gera að breyta til eins og DÍdí sagði. Fara í spinning tíma frekar en á brettið, taka interval training ( hlaupa/æfa eftir hámarkspúl og slaka á milli) og svo breyta um lyftingaræfingar. Bara rugla þessu öllu upp þá ætti brennslan að fara á fullt aftur. Annars er hlaup, hlaup og aftur hlaup bara það besta sem hægt er að gera ef það þarf að taka af sér fleiri kíló:) veit það fyrir eigin sakir því að ég væri 20 kg þyngri miðað við mataræðið ef ég myndi ekki vera að hlaupa alltaf eins og vitleysingur.
Jæja komin svaka langloka hér, gangi þér vel með þessi flottu markmið og vonandi er þér sama að ég linki á þig.

18 02 2008
MjónaN

langaði reyndar að bæta einu við. Ég er að læra um þjálfun og þar fékk ég að vita eitt sem ég hef alltaf misskilið. Það er þessi fitubrennslupúls, alltaf talað um að þú eigir ekki að æfa á of miklum æsingi/púls því þá ertu ekki að brenna fitu. Málið er að það er þannig alveg rétt á meðan á æfingu stendur. En með að æfa þá eykst púlsinn þinn mikið eftir æfingu líka og því hærri sem púslinn er á æfingu því lengur helst hann eftir æfingu sem þýðir að sama skapi að þú ert að brenna fleiri kkal eftir æfingu og lengur( marga klukkutíma stundum) eftir því sem púlsinn verður meiri á æfingu:) Þannig að um að gera að púla bara eins og hægt er í staðinn fyrir að reyna að vera á þessum 50-60& púls:)

jæææja nú er ég hætt hehe

18 02 2008
Svala

Sæl
Er í átaki sjálf og langar að sjá myndir til að peppa mig upp;) Ætla að missa 20kg!

bkv
Svala

Skrá ummæli