Mig vantar 2,6 kg…

11 04 2008

… í að ná 20 kílóunum. Það á eftir að vera mjög mikill áfangi fyrir mig. Ég er búin að streða lengi við að ná honum. Ég hef þar að auki aldrei náð svona miklum léttingi. Ég hlakka líka til að taka myndir og sjá muninn og mæla sentímetrana. Ég líka veit að þegar ég næ 20 kílóunum á eftir að blossa rosalegt keppnisskap upp í mér, af því ég ætla ekki að vera jafnlengi með næstu 5 kg, þ.e. frá 20 kg í 25 kg létting!

Þótt síðasta vigtun hafi ekki verið frábær, þá var hún ekki slæm. Ég ætla samt sem áður að láta markmiðið mitt standa um að ná 20 kílóunum fyrir lok apríl.

Ég er að prófa að borða öðruvísi.

  1. Ég er á tvöföldum fituskammti, en héðan í frá er helmingur þess skammts fljótandi lífræn olía. Ég var allt of föst í klípu og majó.
  2. Ég var hætt að dreifa fituskammtinum yfir daginn, eða gerði það illa. Núna mun ég taka 5 g af olíu á morgnana, svo um leið og ég kem heim, og svo aftur um kvöldið.
  3. Ég var farin að geyma morgunbrauðið allt of oft til hádegis og borða morgunávöxtinn of seint, eða nálægt hádeginu. Núna verður morgunmaturin almennilegur og vel útilátinn. Ég mun þó við og við færa brauðið til að geta gert pizzu og þess háttar.
  4. Meiri fjölbreytni! T.d. skipta út brauði með osti fyrir skyrdós í hádeginu. Prófa nýjar uppskriftir og nýjar samsetningar.
  5. Egg… ég er ekki nógu dugleg að éta þessi egg. Ef þið hafið góðar hugmyndir að því hvernig hægt er að gera annað en að sjóða þau eða búa til ommelettu þá eru þær vel þegnar :)
  6. Vanda matardagbókina meira, vera nákvæmari.
  7. Líkamsrækt: Ég ætla að skipta úr endalausri brennslu í lyfta 3var og brenna 2var :)

Ég er alveg 1000% viss um að mér mun ganga vel í næstu viku. Strax farin að hlakka til að fara í vigtun :)


Actions

Information

10 responses

11 04 2008
Dídí

Ég spæli oft eggin, finnst spælt egg ofan á ristuðu brauði mjög gott, sérstaklega með smá tómatsósu. Svo geri ég mér eggjabrauð, með kanil á morgnanna eða eggjabrauðssamloku með osti í brunch um helgar. Svo er náttúrulega líka hægt að baka eitthvað gúmmelaði úr þeim. :) Ég spæli líka oft egg ofan á hamborgarann minn sem brunch um helgar.

Verður gaman að sjá hvað gerist í næstu viku! Gangi þér vel!

11 04 2008
Hérinn

Ég fæ mér oft soðið egg í litlum bitum útá salat í hádeginu og kotasælu með sem magran ost – eða baka svona ávaxtaköku til að borða í hádeginu. Reyni yfirleitt að “fela” eggin svona í einhverju öðru því mér verður oft óglatt af að borða t.d spælegg.
Svo sýð ég engifer í vatni og reyni að muna að drekka eitthvað af því á hverjum degi, það er vatnslosandi og þar sem ég á það til að safna í mig vatni þá sést það yfirleitt á vigtinni hvort ég hef verið dugleg að drekka engifer eða ekki. Finn mikinn mun á mér hvað ég er eitthvað “útblásnari” þegar ég er ekki að drekka engifer.
Gangi þér vel :)

11 04 2008
15kg

Þú átt eftir að rúlla þessu upp! Líst vel á ræktarplanið þitt.
Gangi þér vel.

12 04 2008
pride

að taka inn olíu á hverjum degi er algjör lykill til að léttast…ég hef verið að taka inn hörfræolíubelgi, 2 a morgnanna og 2 i hádegi alltaf þegar ég borða máltíð og hef lést að meðaltali um 2 kg í hverjum mánuði án þess að borða hollt matarræði…veit ekki hvað það er með hana en þetta er bara undrameðal.

12 04 2008
Gerður

Þetta með eggin þá er líka rosa sniðugt að setja eitt egg í plastskál sem má fara í öbbann og stilla á 1 mín (fyrir 1 egg 2 min fyrir 2) og þá er maður komin með ágætt “scrambled” egg út á salatið í hád eða með steiktu grænmeti :)

12 04 2008
Gamli sveppur

Ég set eina matskeið af hveitiklíði og krydda með jurtasalti (herbamare) út í eggið á pönnunni og hræri svo vel í. Þetta fer svo ofan á morgunverðarbrauðsneiðina þegar það er steikt.
Þess ber að gæta að ég er á viðhaldsprógramminu og næ þarna bæði trefjum og eggjum.
Taka það svo. Kveðjur, sá gamli.

13 04 2008
Margrét

Hér er uppskrift sem ég hef þróað af eggjaböku, hún er smá maus en hrikaleg góð og hentar vel sem nesti í vinnuna í hádeginu.

Grænmetisbaka
Pizzadeig 200 gr., hægt að tvöfalda ef maður vill láta deigið ná upp á barmana.

125 gr. spelt
1,5 tsk. vínsteinslyftiduft
¼ tsk. salt
0,5 tsk. oregano (ef vill)
1. msk. ólífuolía
65 ml. heitt vatn

(ég næ sjaldnast að láta þetta tolla saman, hægt að nota vatn eða olíu til viðbótar, best að ná saman ef hnoðað í hrærivél)

Ef borðaður er fjórðungur er brauðið um 50 til 60 gr.

Steikja stutt á pönnu grænmeti:
3 hausar spergilkál
6 gulrætur
1 laukur
Blaðlaukur
Hvítlaukur
Engifer
Eitthvað annað sem mann langar í
Krydd, salt, pipar ferskar kryddjurtir
Ca. 800 til 1.000 gr. Þegar búið er að steikja

4 egg
500 ml. undanrenna
300 gr. magur ostur – rífa
Salt. Pipar, karrý, basil…..

Líka hægt að setja meira af eggjum og minnka ostinn ef það þarf að koma eggjunum út (er betri þannig)

Setja smjörpappír í lausbotna form, (klessa á milli þannig að það leki síður)
Þrýsta deiginu í botninn og láta ná upp fyrir botinn
Setja steikt grænmeti yfir
Hella eggjablöndu yfir
Krydda með papriku

Setja formið í ofnskúffu ef ske kynni að formið myndi leka baka við 200 gr. í klukkutíma

Gott að hafa ferskt salat með og búa til dressingu úr olíu, hvítlauk, ediki salti og pipar.

Eða hella bara olíu yfir og salta með jurtasalti
Líka er hægt að sleppa botninum alveg ef maður vill frekar borða brauð með.

Baráttukveðjur
Margrét

14 04 2008
Heiða

Mmm hljómar mjög girnilegt :)

14 04 2008
Mars

Datt í hug ein baka hérna.. 300 gr grænmeti smátt saxað sett í mót. 2 eggjum hrært saman við pínu undanrennu og jafnvel krydd og þessu slengt yfir grænmetið. Inní ofn og þá er komin dýrðarinnar baka og ekkert í extra! :)

14 04 2008
Heiða

Sniðugt! Prófa þetta pottþétt, svo fljótlegt og líka tilbreyting við týpíska ommelettu :)

Skrá ummæli