Ég komst yfir gamlar ummálsmælingar af mér í dag. Þetta eru mælingar þar sem ég var 10,4 kg léttari en ég er núna…. sjitt…
Allaveganna. Ég sá náttúrulega bara svart á hvítu hvað ég á langt í land… en líka hvað það mun mikið og gott gerast á næstu 10 kílóum
Mælingarnar voru þessar (set “+tala” fyrir aftan til að tákna hvað ég er hátt yfir þessu núna)
Brjóst: 91 cm + 7 cm í dag
Mitti: 70 cm + 16 cm í dag!
Mjaðmir 101 cm +13 cm í dag
Læri: 57,5 cm +12,5 cm í dag!
Handl: 29 cm + 7 cm í dag!!!
Mér varð pínu illt við að sjá þetta, en um leið mikil hvatning. Það verður rosalegur munur á mér nú þegar næstu 10 kg fara og það er bara FRÁBÆRT að sjá það. Ég hlakka til að verða svona og ég hlakka til að fara ennþá neðar en það!
Nýleg ummæli