Ég er stúttfull af krafti eftir síðustu vigtun. Ég ÆTLA að ná markmiðinu mínu í næstu viku og helst rúmlega það. Ég endaði á því að henda vigtinni inn í skáp af því ég var alltaf “aðeins að tjekka á stöðunni” á HVERJUM degi! Held það hafi slæm áhrif. Ég gæti alveg trúað því að þyngdartapið komi í skorpum yfir vikuna og fari upp og niður þar á milli þannig að sífellt tjekk á vigtinni getur haft niðurdrepandi áhrif og í raun sett huganum ákveðnar skorður.
Nú er það ræktin á hverjum degi, lyftingar á þri, fim, fös og svo brennsla lau, sun, mán og mið. Á þriðjudögum lyfti ég þungt en á fim og fös tek ég meiri þol-lyftingar, semsagt fleiri sett og fleiri endurtekningar
Hlakka til að sjá hverju þetta skilar mér.
Ég er mikið að spá hvað ég geri núna þegar prófastressið færist yfir. Prófin byrja 29. apríl (lestur byrjaður) og mér finnst eiginlega bara pirrandi að þurfa að spá í þeim af því mig langar bara að einbeita mér að danska og gymminu :p En það verður víst ekki komist hjá þessum prófum! Planið er að halda mér samt við efnið í ræktinni, kannski stytta æfingar ef ég hef mjög lítinn tíma t.d. daginn fyrir próf, en ekki skrópa samt sem áður. Ég býst við að vera heima (stúdentagarðar Kef) þannig að ég get ekki farið að lyfta hvenær sem er (tímaeyðsla að keyra í bæinn) . Brennslan verður því sennilega í fyrsta sæti meðan á þessu stendur. En svo klárast þetta 15. maí. Markmiðið er að vera búin með 24 kg í fyrstu vigtun eftir prófin (21. maí) og að ég nái þá 25 kílóunum 28. maí, daginn sem ég fer til útlanda í tvær vikur
Mikið rosalega skil ég þig vel að langa bara að einbeita þér að heilsunni frekar en lesa fyrir próf
En í svona törnum er náttúrulega mikilvægara en nokkru sinni að huga vel að mataræði og hreyfingu til að hafa orkuna til að komast í gegnum próftíman. Að gefa sér tíma til að fara í ræktina skilar miklu meiri árangri í lestrinum en að sitja bara endalaust yfir bókunum! Allavega er það mín skoðun, var í próflestri í rúmar sex vikur síðasta haust og fór þá í ræktina í hádeginu á hverjum degi – bjargaði mér alveg – bæði líkamlega og andlega hehe. Gangi þér vel í prófunum og öllu saman – hlakka til að sjá MÍNUS TUTTUGU hjá þér í næstu viku.