Ég fór í gymmið í dag, tók 20 mín brennslu og svo lyftingar, var í klukkutíma og 3 korter í það heila
og leið ekkert smá vel eftir á. Ég er voða forvitin núna að stíga á vigtina til að sjá hvernig gengur í tölum talið… en ég ætla ekki að gera það. Það er bara best að bíða fram á þriðjudag (einkaþjálfun) og svo miðvikudag (dagurinn sem ég næ 20 kg markmiðinu mínu
).
Ég er voða mikið með þetta (matarræði+rækt) á heilanum núna. Ég hugsa stanslaust um það hvernig ég á eftir að líta út þegar ég verð búin; hvernig andlitið verður, hvað ég mun mjókka mikið, hvernig mér mun ganga að halda áfram að tóna mig til og blablabla. Ég er aftur komin með þennan kraft sem ég hafði þegar ég byrjaði en fjaraði út hjá mér þegar líða tók á veturinn. Ég held persónulega að hugsanirnar og löngunin skipti höfuðmáli. Ég er að drepast úr keppnisskapi þessa dagana. Þegar ég er í ræktinni líður mér eins og ég sé að springa úr orku og ekkert nema hvetjandi hugsanir bergmála í höfðinu á mér. Eina leiðin til að lýsa því er.. já.. bullandi keppnisskap… *urr* :p
Ég er aftur orðin SANNFÆRÐ um að ég muni ná öllum þeim markmiðum sem ég hef set mér. Það eina sem aðskilur mig frá þeim líkama sem ég ætla mér, er tíminn, ekkert annað. Ef ég rek mig aftur á svona stöðnunartímabil eins og gerðist eftir jól þá mun ég bara halda áfram, og halda áfram, og halda áfram… af því á endanum gefur sig eitthvað og ég held áfram að léttast.
Í stað efans sem ég bar í brjósti er komin tilhlökkun. Ég hlakka til að verða eins og ég hef alltaf óskað mér. Ég hlakka til að vera stolt af líkamanum mínum. Ég hlakka til að vera í geðveiku formi. Ég hlakka til að geta verslað föt og verið flott í þeim. Ég hlakka til að útskrifast úr DDV og skoða fyrir/eftir myndirnar mínar og ég hlakka til að vinna markvisst að því að halda mér í formi og njóta þess að vera í góðu formi það sem eftir er!
Að lokum: Fann magaæfingar á youtube sem ég ætla að bæta inn í prógrammið: Sjá hér
Þú ert ekkert smá dugleg. Ég dáist af þér að ná svona miklum árangri. Nánast 20 kg er ekkert smá mikið. Gangi þér vel.
Flott hjá þér, gaman að hausinn er kominn með í gírinn aftur.
Hlakka til að sjá tölurnar, 20 fellur um koll!
Hæ Hæ, ég hef fylgst með þér í nokkurn tíma og verð að segja að að þú ert dugnaðarforkur. Ég er í sama pakka og þú meira að segja nákvæmlega! Jafnhá og jafnþung og þegar þú byrjaðir. Búin með 8 kg og ef einhver uppgjöf er hjá mér þá er nóg að lesa bloggið þitt….. Við munum sigra! Væri alveg til í að sjá myndirnar þínar
kv
Berglind.
Hæhæ
Gaman að vita að þetta blaður gagnast einhverjum :p Ég sendi þér lykilorð um hæl.