Mikill munur!

19 04 2008

Ég kom seint heim í gærkvöldi og dröslaðist upp 3 hæðir með íþróttadótið, tölvutöskuna og skólatöskuna… Ég hélt ég ætlaði ekki að komast upp með allt þetta drasl af því það var svo þungt.

Svo fór ég að velta fyrir mér hvað þetta væru nú mörg kíló sem ég væri að draga upp…. og skellti dótinu bara á vigtina :p (verð að fá að vigta eitthvað úr því ég má ekki vigta sjálfa mig) og þetta voru:

20 kg!!!

Þessi kíló voru innbyggð hjá mér fyrir ekki svo löngu síðan. Þarna áttaði ég mig á því hvað þetta er mikil þyngd sem er farin! Og núna eru 14 kg eftir… og það er nú bara heill haugur (þ.e. mjög þungt). Samt mikla ég þessi kíló sem eftir eru ekkert fyrir mér, heldur finnst mér bara gaman að sjá hvað maður mun koma til með að léttast mikið í viðbót;)

Ég er alveg búin að ákveða að þegar ég verð komin í kjörþyngd ætla ég að búa til einhverja þunga klessu úr einhverju sem vegur þau kíló sem ég hef misst. Af og til ætla ég að lyfta þessum haug og halda á í nokkrar mínútur. Hugsa að það verði ágætis hvatning að halda mér við ;)


Actions

Information

8 responses

19 04 2008
Snæja

Já, svo hugsar maður ‘hvaðan fór þetta?’ hehe :D Hlakka til að sjá tölur, nærð örugglega markmiðinu! ;D

20 04 2008
Sigga H

Hæhæ. Hef aðeins verið að fylgjast með ykkur átaksbloggurunum. Er sjálf á danska og gengur bara svaka vel. Mætti ég kannski fá lykilorðið á myndirnar? Finnst nefninlega mikil hvatning í því að sjá hvað aðrir eru búnir að vera duglegir:)

20 04 2008
Heiða

Ekkert mál :) Sendi þér lykilorð.

21 04 2008
Aðalheiður

Það er gaman að sjá þetta svona for real. pældu í því 20 kíló, þetta eru 2 stykki ársgömul börn. Ég reikna allt í börnum er dagmamma hehe.

22 04 2008
mimzy

Gaman að sjá breytinguna á blogginu :) krafturinn lýsir sér í gegn1 :) nú tæklaru restina bara. En vá 20 kg! shit.. veit ekki hvort ég myndi meika 20 kg lóð!

Gangi þér vel skvís!

22 04 2008
Hérinn

Gætir útbúið þér bakpoka jafn þungan léttingnum hjá þér og farið reglulega með hann á bakinu út að ganga til að minna þig á :)

Frábært að sjá hvað þú ert jákvæð – hlakka til að sjá MÍNUS TUTTUGU hjá þér!

22 04 2008
Sperran

Vá, þú ert alveg svakalega dugleg. Ég er nýbyrjuð í átaki aftur eftir langt hlé og mig langar bæði til að fá að bæta þér á linkalistann minn og til að fá að sjá myndirnar :)

23 04 2008
Heiða

Sendi þér lykilorð :)

Sniðugt þetta með bakpokann! :)

Skrá ummæli