Ekki hafðist það! Ég fór upp um 400 g…. EN…
Þetta er alls ekkert hræðilegt. Síðast missti ég 2,3 kg á einni viku. Ég held að þar hafi verið eitthvað vökvaójafnvægi í gangi og að ég hafi fyrir vikið farið “of langt” niður. Ef ég lít á meðaltal síðustu þriggja vigtana þá eru þetta 0,76 kg á viku… og það er bara flottur árangur, ekkert hægt að kvarta yfir því.
Auðvitað langaði mig að ná 20 kílóunum alræmdu í dag… en ef ég held mig við þetta meðaltal þá koma þau næst. Ég vil líka miklu frekar ná þeim almennilega… og halda mér svo fyrir ofan þann létting heldur en að rétt slefa í 20 kílóin og missa það svo strax í vikunni á eftir.
Ég finn á líkamanum að það er mikið að gerast. Ég er í ræktinni 6 sinnum í viku núna og það mun skila sínu. Þetta eru 3 skipti í lyftingar og 3 skipti í brennslu. Æfingarnar eru yfirleitt 90 mín. Svona æfingar í bland við rétt matarræði munu skila mér árangri. Það er engin spurning. Ég held að það sé mikilvægt að gleyma sér ekki í tölu hverrar viku heldur einmitt líta á stærra tímabil. Ég byrjaði aftur af krafti að borða rétt fyrir 3 vikum og á þeim tíma eru farin 2,3 kg… það getur ekki talist annað en gott!
Ég veit ég hef sagt þetta áður (en það verður bara að hafa það)… 20 kg koma NÆST!
Þegar þú ert svona dugleg bæði í mataræðinu og ræktinni þá fylgja kílóin á eftir – það er ekki spurning! Klapp fyrir þér
Held að þetta sé alveg rétt hjá þér. Þú rúllar þessu upp og tekur 20 kg næst og með stæl. Rosalega ertu dugleg í ræktinni. Ég ætti að taka þig til fyrirmyndar.
Frábært hvað þú ert alltaf dugleg í ræktinni, það fer alltaf í rugl þegar líður að prófum hjá mér…
Svona til að forvitnast, hvernig olíu tekurðu inn sem fituskammt?
Sæl,
Ég var að skoða uppskriftirnar hjá þér og sá þarna jarðaberjaköku sem heillar mjög. Það vantar bara uppskriftina. Er einhver möguleiki á því að þú getir setta hana inn. Langar rosalega að prófa hana í afmæli sem ég verð með um helgina.
sæl, flott síða hjá þér ég er sjálf nýbyrjuð á danska og finnst gott að leita í styrkj á síðum þeirra sem eru svo duglegir að hafa átaksblogg,
mætti ég fá leyniorð á myndasíðuna þína.
kv.Anna
annad@shh.is
Hæ sæta. Þetta hefur örugglega verið smá vatn bara. Maður veit hvað þetta er fúlt og leiðinlegt, en við verðum bara að þrauka.
Svo nærðu 20 kíló núna á miðvikudag, vertu bara nógu viss og segðu bara hreinlega líkamanum að það skuli gerast núna.
Vona að þú hafir átt góða viku!