Komin heim :)

11 06 2008

Komin heim eftir tæpar 2 vikur á flakki. Ferðin var mjög góð og skemmtileg :) Matarmál voru ekki alveg eins og ég áformaði. Ég var búin að ákveða að leyfa mér áfengi (og gerði það) en ég ætlaði að reyna að borða eftir danska mínus vigtun. Það gerði ég ekki :p Ég verð að viðurkenna að ég bara nennti ekki að standa í því að reyna að finna veitingastaði sem buðu upp á salat í hádegismatinn og það allt. Svo í seinni hluta ferðarinnar fékk ég mér ís 3var sinnum. Fyrsti ísinn var bestur… nr 2 var ágætur og nr. 3 var með smá samviskubiti í desert… aðallega af því mér leið eins og ég væri að gera eitthvað af mér :p En til mótvægis við þetta vorum við alltaf að labba út um allt allan daginn og mér til ánægju virðist vigtin eitthvað hafa færst niður í ferðinni. Allaveganna ekkert upp :D Ég fer ekki í vigtun í dag vegna próflesturs… en mæti næsta miðvikudag og bíð spennt eftir að sjá tölur :)

Svo er ég reyndar frekar óánægð með tímasetninguna á vigtununum í sumar:/ Þær bjóða bara upp á þetta einu sinni í viku, seinni part dags. Ég er vön að fara í hádeginu og það getur alveg munað 1 kg ef ekki meira á þyngdinni… *urr*… Ég er svona að gæla við það að vigta mig sjálf á sama tíma og áður þessa daga sem DDV er með sumarfrí… en ég á eftir að gera það upp við mig.


Actions

Information

5 responses

11 06 2008
Dídí

Já þetta er pínu óþægilegur tími en þær verða náttúrulega að fá sumarfrí líka greyin. :)

Þú er rosalega dugleg og að leyfa sér smá í sumarfríinu sínu er ekki stór glæpur, ef maður kemst strax á rétta braut. :)

Gangi þér vel skvísa!

11 06 2008
Gerður

Velkomin heim! :að verður gaman að sjá tölurnar í næstu viku. ég er sammála þér með vigtunardaga, er einmitt líka í hád venjulega en svona er þetta bara ;) <
Gangi þér vel í próflestri.

12 06 2008
Hérinn

Velkomin heim :) Það verður gaman að sjá tölu í næstu viku.

13 06 2008
Jolly

Hæhæ. Er ein sem er að hendast í DDV og langaði að ath hvort ég mæti líka á myndirnar hjá þér líka :)
Til hamingju með að vera búin að ná þetta langt :P

17 06 2008
dísa

ég er að berjast við að halda mér í ddv en gengur ekki nógu vel.gæti ég fengið að fylgjast með þér ?ég náði 20kílóum af en 6 komin aftur urrrrrrrrrrrr.

Skrá ummæli