Vigtun á eftir

18 06 2008

Jæja… vigtun á eftir. Ég á von á upp-tölu. Ekki vegna þess að mér finnist ég hafa bætt á mig, heldur vegna þess að ég er að skipta um vigtunartíma. Ég ætla því ekki að láta neitt á mig fá ef vigtin verður meiri (gæti meira að segja orðið talsvert meiri þar sem miklu munar á morgun- og kvöldþyngd hjá mér) og taka þess í stað mark á henni í næstu viku :)

Ég var að íhuga það að sleppa vigtununum í sumar en það er ekkert vit í því. Best að mæta samviskusamlega í hverri viku og fá aðhaldið og stuðninginn af því. Síðasta sumar gekk einna best/hraðast hjá mér í danska. Ég held að það hafi verið vegna þess hvað vinnuumhverfið býður upp á stöðugt matarræði, þ.e.a.s. ef ég er dugleg að taka með nesti. Ég ætla því að nýta það til hins ítrasta, vera dugleg að útbúa hádegismat, halda mig við prógrammið og léttast slatta í sumar :)

Mig langar að miða við að ná af mér 7 kg fyrir lok sumars, þ.e. fyrir byrjun sept.

Læt heyra í mér eftir vigtun :)


Actions

Information

Skrá ummæli