Hreyfinga-sumar

20 06 2008

Ég er búin að vera að spá mikið í því hvernig ég muni hátta hreyfingunni í sumar (sérstaklega af því ég þarf að þvælast milli Kef og Rvk á hverjum degi og það tekur mikinn tíma).

Niðurstaðan varð þessi:

Mánudaga til föstudaga tek ég hjólið með í rútuna kl. 7 og hjóla svo úr rútunni í vinnuna (ca. 10-15 mín, mikið niður í móti) svo í lok dags hjóla ég aftur í rútuna (ca. 20 mín, allt upp í móti). Þannig að þarna er strax komin auka 30 mín hreyfing á dag sem getur hæglega verið 300-400 kcal. Svo mun ég 3var í viku fara í ræktina og lyfta og svo 2-3var í viku taka brennslu heima í 60 mín lágmark. Lyftingaæfingar eru yfirleitt 90 mín a.m.k. Ég mun því fá ca. 8,5 tíma intense hreyfingu á viku fyrir utan aðra hreyfingu eins og labb hingað og þangað og svona. 

Svo er ég í mjög góðum matarræðisgír núna og bara finn að þetta mun ganga vel í sumar! Stefni mjög flotta tölu fyrir lok sumars :D Það verður spennandi að sjá hvernig þetta mun ganga.


Actions

Information

6 responses to “Hreyfinga-sumar”

20 06 2008
Hrönn (21:45:35) :


Gaman að fylgjast með þér, lýst rosalega vel á þetta plan. Ég vildi að ég væri svona dugleg að hreyfa mig……Gangi þér áfram vel !!

21 06 2008
Hérinn (11:38:02) :

Glæsilegt plan hjá þér :) Þegar þú ert svona jákvæð og einbeitt þá getur þetta ekki annað en gengið vel hjá þér.

22 06 2008
15kg (01:14:29) :

Mjög flott plan hjá þér.
Langar að spyrja, þú varst/ert í einkaþjálfun. Hjá hverjum varstu? Er sjálf að spá og er að reyna að finna góðan þjálfara.

22 06 2008
Aðalheiður (21:57:01) :

hæ nafna
ertu ekki á keilissvæðinu??
er þá ekki svona gym í kjallaranum hjá þér??
en gott að sjá að þú ert on the move

23 06 2008
Heiða (08:21:37) :

Hæhæ, jú er á Keilissvæðinu, en það er bara gymm í einstaklingshúsunum. En ég fer einmitt og stelst inn í þau af og til :p

En það er ekki gott að lyfta þar, og tækin eru mjög úr sér gengin, en ég fann eitt hús með sæmilegum crosstrainer sem ég nota til að taka brennslu2-3var í viku.

23 06 2008
Heiða (08:22:32) :

15 kg: Er hjá Guðbjörgu í Hreyfingu. En ég held að hún sé frekar að minnka við sig frekar en hitt þessa dagana.

Skrá ummæli

You can use these tags : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>