Allt gengur vel. Matarræði mjög fínt. T.d. 5 sinnum fiskur yfir vikuna (sem er met hjá mér :p ). Svo er hreyfingin á fullu. Fór á fimmtudaginn að lyfta, á föstudaginn fór ég út á sjó í róður (hörkupúl), lyfta á laguardagnn og svo á sunnudaginn fór ég upp á Esju. Svo í dag er ég að fara í skvass eftir vinnu. Svo til viðbótar við þetta er daglega hjóleríið í og úr vinnu.
Ég vona að ég fái góða tölu niður á miðvikudaginn. En ég ætla samt bara að vera við öllu búin þar sem ég er með mikið meiri áherslu á styrktarþjálfun núna en áður. Þannig að ef ég stend í stað eða léttist lítið þá er það pottþétt út af vöðvum :p Ætla að passa mig á því núna að láta það ekki á mig fá ef hægt gengur af því ég veit að matarræðið er mjög gott, og hreyfingin er mjög fjölbreytt og góð þessa dagana. Þannig að ef ég held því bara nógu lengi áfram þá lekur þetta af á endanum ![]()
Takk fyrir kommentið - var einmitt að uppgötva matarvefinn í gær lika og ætla að skrá inn á hann í dag það sem fer ofan í mig. Þega ég fór að hugsa til baka síðustu daga þá sé ég að ég er búin að vera undanfarið að tína uppí mig smá bita hér og þar sem telur náttúrulega helling þegar það safnast saman yfir vikuna. Verður fróðlegt að sjá hvað svona venjulegur dagur gerir í kalóríum hjá mér.
En mikið svakalega ertu dugleg í hreyfingunni ! Alveg sammála þér með að horfa ekki allt of mikið í vigtina þegar góðar æfingar eru komnar inn - t.d. er ég nú um 5 kg þyngri en ég var áður en ég fór að æfa en samt í númeri minni fötum. Fyrir utan hvað tilfinningin er góð þegar maður er kominn á þann stað að hreyfingin er bara orðinn ómissandi partur af deginum hjá manni - það finnst mér æði
Frábært þetta hjá þér. Þú ert bara að standa þig rosalega vel. Var að spá hvort ég mætti fá aftur lykilorðið hjá þér, get bara ekki munað hvað það var.
Var að senda á þig.
Frábært að heyra hvað þér gengur vel. Þú ert svoleiðis að massa þetta ;D
Vá varð þreytt á að lesa þetta vona að það gangi vel í dag