Ég skrapp aðeins í Kringluna í hádeginu, sem er ekki í frásögur færandi, nema fyrir þá skemmtilegu staðreynd að ég passaði í buxur nr. 42 í Vero Moda
Þær voru meira að segja aðeins og víðar yfir magann :p Ég hef ekki passað í þetta númer leeeengi. Ég t.d. gat ekki troðið mér í nr. 46 þegar ég byrjaði í danska. Gæti alveg trúað að ég hafi verið í stærð 48-50!
Vííí gaman
Nú er markmiðið bara að komast í nr. 40. Það hefur bara aldrei gerst svo ég muni
Gott að bömmerinn entist ekki lengi
Þú ert búin að ná glæsilegum árangri og ert á góðu skriði núna – ættir að bera myndirnar núna saman við aðrar sem voru teknar fyrir 20 kg síðan frekar en að horfa bara á þær einar og sér.
Það er nú ekkert smá flott að vera komin úr buxnastærð 48 eða 50 og niður í 42!!!! Stattu þig áfram og yfirgnæfðu röddina í niðurrifspúkanum með jákvæðninni í þér – verður ekki í vandræðum með það.
Vá, til hamingju! Alltaf gaman að komast í nýtt númer
Þú ert okkur hinum mikil hvatning – mundu það! Dugnaðarforkur.