Nýkomin heim úr veiði

8 07 2008

Kom heim, seint í gærkvöldi, úr 3ja daga veiðiferð. Ferðin var ósköp notaleg og ég ákvað að fá mér vín og svona í ferðinni og ég skildi vigtina eftir heima. Þessi ferð, ásamt einni í viðbót, er sumarfríið mitt í ár og ég var búin að ákveða að í þessum ferðum ætlaði að ég leyfa mér hluti sem venjulega eru bannaðir, eins og vín og kannski sósur eða slíkt. En nammi, kökur, kex og þess háttar er alltaf bannað.

Ég steig aðeins á vigtina í morgun eftir ferðina og var alveg rúmu kílói þyngri. Veit að eitthvað af þessu er vökvi, en þar sem vigtunin er á morgun reikna ég með að fara upp.  Ég læt þetta ekkert á mig fá af því ég er annars dugleg í matarræðinu og ætla að halda mig við markmiðið mitt í sumar sem var 7 kg niður fyrir haustið :)

Planið er semsagt: Borða skv. DDV, lyfta 3var í viku og fara í skvass1-2var í viku. Svo er líka markmiðið að fara upp á Esju lágmark 2var í mánuði… helst vikulega. En það ræðst líka af veðri.

Á laugardag er ég boðin í afmæli og brúðkaup. Ég ætla bara að vera búin að borða fyrir veislurnar og sleppa öllu þar nema það séu ávextir eða eitthvað hollt. Ég ætla að passa mig á því að sumarið renni mér ekki úr greipum, heldur nýta tímann í að léttast svolítið hressilega ;) Það er oft hægt að afkasta miklu á stuttum tíma þegar maður er motiveraður og mér finnst ég vera mjög motiveruð núna.

Þannig að næst á dagskrá er ræktin í dag að lyfta og svo hjóla heim.  Lyfti svo aftur á fim og lau. Síðan er það Esjan á föstudagskvöldið (eða sunnudag) :)


Actions

Information

2 responses

9 07 2008
Gerður Pálsd.

Velkomin heim. Þú ert ekkert smá dugleg í ræktinni stelpa! ég ætti að tak þig til fyrirmyndar, veitir ekki af :)
Gangi þér áfram vel!

9 07 2008
frk fiskur

Gangi þér vel í vigtuninni á eftir. Hlakka til að sjá þig á föstudaginn.

Skrá ummæli