Ég er búin að velta matarmálum mikið fyrir mér núna…. Ég hef síðustu mánuði skoðað alls kyns önnur prógrömm og matarræði og hef komist að þeirri niðurstöðu að það sé farsælast fyrir mig að halda mig við danska. Þessi prógrömm ganga meira og minna út á það sama: borða mikið prótín, lítil kolvetni og holla fitu og eins að borða jafnt yfir daginn. Ég get því alveg eins og haldið mig við danska kúrinn eins og hvað annað.
Þegar ég byrjaði fyrir rúmu ári gerði ég samning við sjálfa mig sem hljóðaði upp á það að ég myndi halda mig við DDV þar til ég væri komin í kjörþyngd og ekki skipuleggja neitt svindl eða láta eins og ég eigi það skilið. Ég hef staðið við þetta. Núna er einhver mótvindur í gangi sem ég get ekki skýrt auðveldlega… en ég hugsa að það breytist ekki við að “skipta” um matarræði. Þá aukast bara líkurnar á að ég sleppi mér og geri of miklar tilslakanir. Ég er því búin að ákveða að standa af mér þennan mótbyr sem er í gangi núna og HALDA ÁFRAM.
Þetta er gott matarræði og þetta er fjölbreytt matarræði. Ég þarf e.t.v. bara að auka prótínskammtana mína og prófa að borða eins mikið og ég get innan rammans til að kýla upp brennsluna. Ég er t.d. að mestu hætt að nota extraflokkinn (af því ég hef ekki jafnmikla þörf fyrir hann og ég gerði upphaflega). Kannski voru mistök að sleppa þeim kaloríum. Kannski er ég að fá of lítið þegar ég sleppi extranu. Ég er líka búin að skera niður í kolvetnum (kartöflum, hrísgrjónum, pasta o.þ.h.) Kannski veitir mér bara ekkert af þeim.
Í gær var ég í matarboði. Þar var dýrindismatur á borðum og svo í desert var rosaleg súkkulaðikaka. Fólk borðaði hana með orðunum “Váááa… þetta er bara besta súkkulaðikaka sem ég hef smakkað…” og svo kom “Heiða… þú bara VERÐUR að smakka þetta!” En ég svaraði bara á sama veg og ég er vön að ég sleppi öllu svona og áttaði mig um leið á að það er VANINN sem heldur mér á réttri braut. Ef ég fer út í eitthvað nýtt núna þá MUN ég gera tilslakanir og þá MUN ég borða eitthvað sem ég ætti að sleppa. Ég veit þetta og því væri það hreinlega skipulagning á mistökum að ákeða þetta á þessum tímapunkti. Planið er því að halda áfram á danska. Ég ætla aftur á móti að hafa þann möguleika bak við eyrað ef ég held áfram að standa í stað/þyngjast að prófa að taka eina máltíð á viku þar sem ég má borða eitthvað sem venjulega væri bannað, hreinlega með það fyrir augum að koma líkamanum á óvart… en það er alls ekki ávísun á óhollustu… bara eitthvað orkuríkara en ég er vön. En fyrst um sinn ætla ég að auka skammta, borða meira extra og vita hvað gerist.
Eitt er víst að ef ég er að þyngjast núna á þessu góða matarræði… þá mun ekkert gott hljótast af því að hætta og fara út í eitthvað sem ég e.t.v. ræð ekki við. Ég er viss um að þetta er tímabil sem mun líða hjá.
Frábært blogg
það er nátturlega rétt hjá þér ef þú ert að þyngjast við þetta hvernig helduru að fari ef þú ferð í eitthvað annað eða slakir á
um að gera að prófa viku í viðbót bæta aðeins skammtana og sjá hvað gerist þetta getur jú ekki haldið endalaust áfram.
Rosalega líst mér vel á þessa ákvörðun hjá þér
Þú ert greinilega miklu skynsamari en ég – ég skipti nefnilega og bætti á meðan á mig nokkrum kílóum og er svo byrjuð aftur núna. Lenti nákvæmlega í því sem þú lýsir hér að ofan með tilslakanirnar!!
Vonandi gengur þessi vika rosa vel hjá þér svo þú fáir góða tölu með tilheyrandi “bústi” í næstu viku.
Já, þetta hlýtur að koma á endanum!
Er reyndar á leið út á land á mánudaginn í viku þannig að ég kemst ekki í vigtun fyrr en eftir 2 viku… en vonandi verður þá eitthvað gott uppi á teningnum.
Þegar ég fór að æfa með danska þá lennti ég einmitt líka í þessu veseni..
Ég var búin að vera í mikli rútínu.. borða nánast það sama í þónokkurn tíma á liggur við sama tíma sólarhrings.. Þannig ég passaði mig á því að hafa ALDREI það sama í matinn.. aldrei borða það sama í morgunnmat heldur hafa fjölbreyttni og koma líkamanum á óvart. Líkaminn er svo ótrúlegur að þegar hann er t.d búinn að vera að lyfta með sama lyftingarprómgrammi í marga mánuði fer hann að venjast þessum æfingum og fer ósjálfrátt að taka ekki eins mikið á því hann þekkir þessar hreyfingar. ÞAð er alveg eins með matinn… dæmi: sumir fara sjaldan á hestbak. svo þegar marr prufar allt í einu að fara á hestbak reynist á vöðva sem maður reynir sjaldan/aldrei á þá fær maður þvílika harrsperur því þarna notaði maður vöðva sem sjaldan eru notaður.. skiluru hvað ég er er að fara?
2. Hugurinn er mátturinn:
Ég hætti að hugsa um vigtina og megraun… ég gat ekki meira.. að vigta mig 1 sinni í viku í mörg ár var ekki gott fyrir mig.. ég hætti að vigta mig og hugsa um vigtina, reyndi frekar að fara á vigtina 1 í mán. og bætti frekar inn cm mælingum sem segir meira finnst mér..
Mannstu þegar þú varst að benda okkur á greinina í mbl eða vísi um rannsóknina sem var gerð um hugarmáttinn og megraun. Það á VEL við hjá mér..HUGURINN ER MÁTTUR
Mér finnst alveg frábært að þú æfir svona mikið… núna ertu búin að þynjast 3 kg á 3 vikum. Ertu nýlega búin að fara í cm mælingu og ath hvort eitthvað meira sér farið..?
Kolvetni eru nauðsynleg… sérstaklega þegar maður er að æfa svona mikið eins og þú ert að gera.. ég hef þetta til hliðsjónar í hverri máltíð:
50% grænmeti, ávextir og ber,
25% prótein, frá fiski, eggjum, kjöti, tofu, linsum, baunum eða próteindufti, 1/8 heilar kornvörur: brún hrísgrjón, glútenfrít eða fullkornapast ofl.
1/8 fita frá hnetum eða mjög góðum olíum.
Ég er ánægð með þig að halda áfram.. Enda ertu ekkert í kappi við það að missa kg heldur í kappi við það að líða vel? og hvernig er þér búið að líða undanfarið 3 vikur? þú ert búin að borða holt og æfa vel. Meira er ekki hægt að gera ….
ég vona að þetta hefur hjálpað þér eitthvað.. Gangi þér rosalega vel.. eins vel og þér er búið að ganga, þó að vigtin segir annað þá ertu á MJÖG góðri braut um að breyta um lífsstíl… ekki vinna vigtina