Ég komst að þeirri niðurstöðu í gær að ég var farin að vera heltekin og nánast haldin þráhyggju yfir léttingsmálum. Þetta var gengið það langt að ég svaf illa, lá andvaka og ég held það hafi hreinlega verið út af óhóflegum pælingum um að léttast. Ég tók því ákvörðun í gær og hún er sú að öll mín orka og einbeiting mun ekki fara í að léttast, heldur mun hún fara í að borða rétt og hreyfa mig. Óhjákvæmilegur ávinningur af þessu er svo að léttast. Ef ég léttist ekki, þá mun ég skoða matinn… ekki kvelja mig yfir því.
Nú var ég t.d. að prófa að setja inn dag á www.matarvefurinn.is og ég rétt náði 1500 kcal yfir daginn. Miðað við mína hreyfingu þá er þetta sennilega of lítið fyrir mig. Það á aftur á móti eftir að koma betur í ljós. Ég ætla núna að prófa að skrá niður nákvæmlega upp á gramm hvað ég borða alla daga og skrásetja kaloríumagnið, og skiptinguna í kolvetni, prótín o.s.frv. Ef mér svo gengur áfram illa að léttast þá get ég haft alveg frábær gögn með mér til næringarráðgjafa til þess að fá ráðgjöf.
Mér finnst ég aftur vera orðin spennt yfir danska og er bjartsýn á framhaldið. Ég ætla að einbeita mér að þeim jákvæðu breytingum sem þegar hafa orðið á mínum lífsstíl og þar með útliti og halda áfram að gera jákvæðar breytingar og stuðla að áframhaldandi velgengni!
Hljómar eins og þú sért hreinlega ekki að fá næga orku miðað við hvað þú ert dugleg að hreyfa þig. Líkaminn fer þá náttúrulega að halda í það sem hann hefur ef hann er ekki að fá nóg yfir daginn.
Ekki gott ef þetta er farið að halda fyrir þér vöku!
Hefurðu tekið cm málin af þér? Hugsa að þær mælingar sýni þér kannski að þrátt fyrir að léttingurinn sé ekki eins og þú vildir þá er ég viss um að ummálið hefur minnkað þar sem þú ert að stunda mikla og góða hreyfingu.
En gott að heyra að þú ert jákvæð og bjartsýn með framhaldið, það sem ég hef lesið hér á blogginu þínu sýnir mér að þú ert þrældugleg, jákvæð og skynsöm og ég efast ekki um að þú átt eftir að finna þína leið með þetta allt saman.
Það verður gaman að fylgjast með þér áfram.
lýst vel á þig sæta..gangi þér rosalgega vel..
Hæ mér finnst þetta mjög raunhæf og rétt afstaða hjá þér. Ég hef verið að lesa hjá þér öðru hvoru og hef gaman af, ekki síst vegna þess að það sem þú hugsar og segir endurspeglar mig sjálfa og vangaveltur mínar(örugglega fjölda annarra).
En það sem mig langar að spyrja þig um eru breytingarnar sem voru gerðar á extranu í danska mataræðinu um síðustu áramót. Ég hef sjálf verið að detta inn og út úr mataræðinu og á gamlan bækling frá ÍVR sem inniheldur ekki breytingarnar. Var búin að spyrja þig um þetta fyrr á árinu en greinilega ekki geymt póstinn frá þér nógu vel
Hvað er aftur leifilegt magn af ávaxtasafanum á dag? og manstu hvort það einskorðast bara við appelsínusafa eða má líka fá sér eplasafa?
Ég vona að þú hafir tíma til að svara mér þar sem ég er að starta mér aftur í danska.
Gangi þér svakalega vel og takk.
Kv. Margrét.
Hæ Margrét. Þú mátt drekka 150 ml af safa í staðinn fyrir ávöxt með morgunmatnum. Þetta einskorðast ekkert við einhvern einn safa. Verður bara að kíkja á innihaldslýsingarnar og vita hvort safinn sé nokkuð stútfullur af sykri. Ef þú ert að drekka einhvern safa sem þú veist að er leyfilegur, prófaðu bara að finna öðruvísi safa með sambærilegu magni af kolvetnum t.d.
ok takk fyrir þessar upplýsingar.
Gætirðu líka upplýst mig um breytingarnar í extranu? það var eitthvað sem bættist inn er það ekki? ég man eftir lárperu og hnetum en hvað mikið magn man ég ekki.
Kv. Margrét.
Það var alveg heillangur listi
Myndi tjekka á DDV-spjallinu eða rabba við þær á fundi. Man þetta ekki alveg
Aðallega er þetta að hnetur eru leyfilegar, 5 g = 1 kross í extra.
Sæl Heiða
ég byrjaði í danska 2006 og hef verið on/off síðan…nú er ég að setja mig í gírinn og hef verið að kíkja á síðuna þína í sumar og er alveg heilluð af því hversu þrautseig og dugleg þú ert! Ég mun kíkja við hérna reglulega og hvet þig eindregið til að komast yfir fjallið sem mætir þér núna! En mig langaði líka til að biðja um lykilorðið?
Bestu kveðjur, Lóa