Fríið var yndislegt og mjög notalegt. Slappaði mikið af, reyndi mikið að veiða (gekk ekki) og var úti á hverjum degi í fríska loftinu.
Matarmál voru la-la. Borðaði að sjálfsögðu ekkert nammi, en var ekkert að vigta ofan í mig og át mikið brauð og svona. Svo fékk ég mér yfirleitt 2-3 áfengisglös á kvöldin. En það var líka eins og ég var búin að ákveða áður en ég fór þannig að ég er nú ekkert að blammera mig fyrir það.
Nú er það bara harkan á ný. Ég mun standa við ákvörðun mína um að halda mig við danska og ætla bara að gera það með stæl. Ég ætla að skrifa mun nákvæmar niður hvað ég borða heldur en DDV matardagbókin býður upp á og líka skrá það á matarvefinn til að halda utan um kaloríurnar. Framundan er svo grunnbrennslumæling (um leið og ég fæ tíma) og viðtal við nýjan einkaþjálfara um breyttar æfingaáherslur. Svo er ég líka að spá í að fara í viðtal til næringarfræðings, bara svona til að læra eitthvað nýtt og fá hvatningu:) Ég held það sé mikilvægt að leita sér nýrrar þekkingar á þessu sviði og halda áfram að bæta sig.
Á fimmtudaginn byrja ég svo í mastersnáminu en ætla samt að vinna út ágústmánuð til að næla mér í smá aur. Ég þarf að vera mjög skipulögð með náminu en ég held að það sé allt hægt svo lengi sem ákveðnin er til staðar;)
Velkomin heim
Sýnist þú bara hafa staðið þig vel í fríinu. Finnst alveg sjálfsagt að leyfa sér eitthvað þegar maður er í fríi, en það er munur á því og að detta algjörlega í sukkið eins og ég á það til að gera :S En nú er maður aftur kominn í hollustuna
Þú rúllar þessu öruggleg öllu upp – léttingnum, æfingunum og náminu
Gangi þér vel. Væri gaman að fá að fylgjast með
Dugleg ertu, sniðugt einmitt að fara til einhvers sem hefur mikið vit á næringu og slíku! Gangi þér áfram vel!