Ég hef aldrei á ævinni verið jafndugleg að hlaupa og nú (klapp á bak). Eftir að ég byrjaði að æfa með hlaupahópnum er bara ekkert annað í boði en að mæta á æfingar. Og loksins, eftir tvo mánuði af “oooh mig langar bara ekkert a þessa æfingu” og “en ekkert helvítis væl, af stað” þá [...]
Sarpur fyrir nóvember, 2011
Hlauptu kona! Snjór og hálka er ENGIN afsökun
Posted: miðvikudagur 30. nóvember 2011 in Hlaupahópur, HreyfingSkellti mér í gær í fyrsta tímann í hlaupanámskeiðinu. Þar voru okkur kennd nokkur undirstöðuatriði í hlaupatækni sem kölluð er Smart Motion. Manni leið á köflum hálfundarlega og hljóp mjög asnalega að því er manni fannst. En það er víst allt eðlilegt. Þessi hlaupastíll er til þess fallinn að minnka allt álag á liði, .t.d. [...]
Í kvöld fer ég á mitt fyrsta hlaupanámskeið! Markmiðið með námskeiðinu er að kenna manni að hlaupa þannig að álag á liðamót og orkunotkun lágmarkist. Ég er mjög spennt að sjá hvort þetta hjálpi mér að auka hraða. Þetta verða þrjú til fjögur skipti og fyrsta skiptið fer í að kenna undirstöðutæknina sem á að skila [...]
Síðustu daga hefur mér hreinlega ofboðið framboðið af mat og sælgæti allt í kringum mig. Það er enn mánuður í jólin og það er eins og fólk sé bara að “koma sér í gírinn”… át-gírinn réttara sagt. Það er skuggalega auðvelta að detta í svona gír og byrja að framleiða afsakanir á færibandi, en ekki [...]
Ég hef fyrir löngu áttað mig á því að minn akkilesarhæll þegar kemur að því að taka til í mataræðinu og grennast er niðurrífandi hugarfar eða réttara sagt hugsanavillur. Mér gengur jafnvel allt í haginn þar til allt í einu eitthvað af eftirfarandi gerist: Ég hef náð miklum árangri en svo allt í einu stend [...]
Fjórtán km hlaup afgreitt á laugardagsmorguninn. Nýtt PR í vegalengd. Beint eftir hlaupið fór ég í skvass…. steindauð eftir þetta. Ég er nokkuð stolt af mér að hafa klárað þetta og verð að segja að þetta gaf mér smá kraft inn í hlaupaæfingarnar (sem mér finnst erfiðastar og mig langar mest að skrópa á þær). [...]
Í morgun ákvað ég að taka stöðuna á vigtinni… stór mistök. Ég hafði þyngst um rúmlega hálft kíló. Ég var mega-ósátt með þetta og fannst allt ömurlegt í nokkrar mínútur. “Ég get þetta aldrei. Ég á aldrei eftir að grennast. Þetta er svo ósanngjarnt.” Fórnarlambs-mode alveg í botni. En svo tók ég mig taki. Þetta [...]
Í gær var aftur komið að snatch-æfingu. Fannst ég hálgerður aumingi í byrjun æfingar (suma daga er maður nautsterkur, aðra daga veiklulegt strá). Eftir upphitun skánaði tilfinningin nú aðeins en ég fann fyrir hressilegri þreytu í framanverðum öxlum eftir OH-squat föstudagsins. Hvað um það. Byrjaði á Burgener-upphitun og vann mig svo upp í max. Markmiðið [...]
Eitthvert gáfumennið sagði einhvern tímann: If you fail to plan, you plan to fail. Orð að sönnu held ég. Mér gengur alltaf vel í hreyfingunni enda er hún skipulögð í þaula. Það er skýrt hvað verður gert á hverri æfingu, tímasetningin er skýr og þar að auki er æfingafélagi sem bíður á hverri æfingu. Mataræðið [...]
Að komast í form og innri hvatning
Posted: laugardagur 12. nóvember 2011 in Hreyfing, Hugarfar, MatarræðiðÉg hef mikið velt því fyrir mér undanfarið hvers vegna mér hefur gengið illa að halda mér á heilsuvagninum gegnum árin. Hreyfingin hefur alltaf verið á sínum stað en mataræðið er allt of ómarkvisst. Nokkur góð tímabil koma inn á milli þess sem getur ekki talist heilbrigt mataræði. Þessu er ég alltaf að reyna að [...]