Hugsanavillur og breyttur lífsstíll

Posted: mánudagur 21. nóvember 2011 in Hugarfar

Ég hef fyrir löngu áttað mig á því að minn akkilesarhæll þegar kemur að því að taka til í mataræðinu og grennast er niðurrífandi hugarfar eða réttara sagt hugsanavillur. Mér gengur jafnvel allt í haginn þar til allt í einu eitthvað af eftirfarandi gerist:

  • Ég hef náð miklum árangri en svo allt í einu stend ég í stað.
  • Ég þyngist skyndilega (óverðskuldað eða ekki).
  • Ég læt eftir mér freistingu sem ekki var plönuð.
  • Ég stenst ekki eigin (stundum ómannlegar kröfur) á einhvern annan máta.

 Viðbrögðin eru síðan hugsanavillur á borð við:

  1. Nú get ég bara ekkert grennst meira.
  2. Ég á aldrei eftir að ná árangri (mín nýbúin að massa fullt af kílóum… bullið).
  3. Ég get þetta ekki.
  4. Og enn verra: Ég vil þetta ekki. (Hámark sjálfsblekkingarinnar).
  5. Ég er ömurleg, gefst alltaf upp (t.d. eftir að hafa borðað eitthvað út fyrir plan).
  6. Ég verð bara alltaf feit => Fórnarlambsfasi og meira át út fyrir plan

1. – 6. er síðan endurtekið eftir þörfum þar til “allt er ónýtt”.

Það magnaða er að þetta virðist eingöngur bundið við mataræðið. Í hreyfingunni er takmarkið hið ógerlega og svo er bara hamast þar til því er náð og vel það. Efi er orð sem Ræktar-Heiða þekkir ekki. En aðra sögu er að segja um Matar-Heiðu.

Nú hef ég fengið mig fullsadda af svona vitleysu og ætla að tækla þessar hugsanir markvisst. Ekki stundum, ekki þegar mér hentar, heldur markvisst. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að öll mín vandamál tengt því að léttast, t.d. mikil síðdegisnartþörf, erfiðleikar við að halda mig við planið o.s.frv. eiga öll rætur sínar að rekja í sömu hugsanavillurnar. Í stað þess að ráðast á afleiðingar hugsanavillnanna ætla ég að ráðast á hugsanavillurnar sjálfar.

Fyrsti liðurinn í þessu var spyrja mig hvað skiptir mig mestu máli og hvers vegna ég vilji ná árangri. Þessi atriði er ég búin að skrifa niður á tvö lítil spjöld sem passa í veskið mitt. Annað spjaldið tengist útliti, hitt spjaldið tengist heilbrigði. Þessi psjöld les ég a.m.k. tvisvar sinnum á dag á fyrirfram ákveðnum tímum. Þar að auki þá kippi ég þeim upp ef mér sýnist vont í sjóinn og erfitt tímabil framundan.

Næsti liður tengist því að tækla fórnarlambsfasann. Mér líður oft eins og ég fái ekki nóg að borða (samt fæ ég yfirdrifið nóg, þetta er bara félagi haus að kvarta). Til að tækla þetta hef ég því ákveðið að allt standandi nart eða nart í bílnum og við skrifborðið í vinnunni er bannað. Mat skal borða í formi máltíðar og hana skal borða sitjandi við borð (þó ekki skrifborð).  Þetta er til þess fallið að maður fær “snapshots” af því sem maður borðar yfir daginn og áttar sig frekar á því hvað maður raunverulega er að háma mikið í sig. Í stað þess að borða hálfan morgunmatinn sitjandi og grípa svo ávöxt með mér sem ég borða á hlaupum þá stilli ég öllum matnum upp fyrir framan mig, leyfi augunum að berja dýrðina augum og borða svo. Þetta er verkefni dagsins og næstu daga. Að auki ætla ég að gefa mér eitt klapp á bakið í hvert sinn sem ég fygi þessu plani.

Næstu vikurnar mun ég innleiða skref fyrir skref tækni eins og þessa sem hjálpar mér að komast á réttan stað með kollinn því ég veit að ef hugarfarið er gott þá verður erftirleikurinn auðveldur.

Ummæli
  1. mjona says:

    :) :)
    Ef við höfum ekki höfuðið með okkur gengur ekkert :) ánægð með þig :)

  2. Heiða says:

    Algjörlega, hann stjórnar þessu víst öllu saman…

  3. Asta S. says:

    Mjög svo rétt .. alveg ótrúlegt oft á tíðum hvað þetta toppstykki manns getur farið með mann í gönur! :)

  4. [...] búin að éta fimm súkkulaðimola. Í staðinn fyrir að óskapast yfir því og fara síðan í fórnarlambsfasa sem endar með “núna er allt ónýtt” og símtali í vælubílinn að þá ætla ég [...]

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s