Sarpur fyrir desember, 2011

Markmið 1 CHECK

Posted: föstudagur 9. desember 2011 in Árangur, Vigtanir

Léttist um 1,2 kg þessa viku og náði þar með -5 kg markmiðinu! Er þar með 2 vikum á undan áætlun því planið var að ná þessu fyrir jól. Meira svona! Nú er stefnan sett á -7,5 kg fyrir jól.

Svarti jakkinn – Framhald

Posted: fimmtudagur 8. desember 2011 in Árangur

Ég ákvað í morgun að máta aftur svarta jakkann minn. Fyrir þá sem ekki kunna bloggið mitt utan af er um að ræða æðislega flottan svartan blazer sem ég keypti fyrir nokkrum mánuðum þótt hann væri allt of lítill Hann var svo æðislegur… ég hafði gefið honum auga um langt skeið en aldrei tímt að [...]

Nýtt markmið fyrir desembermánuð

Posted: miðvikudagur 7. desember 2011 in Hreyfing

Ég var að fá þá frábæru hugmynd að stefna að æfingu alla daga í desember. Það hef ég aldrei gert áður. Planið núna er svona: Mánudagur: Lyfta Þriðjudagur: Hlaupaæfing Miðvikudagur: Skvass Fimmtudagur: Hlaupaæfing Föstudagur: Lyfta Laugardagur: Hlaupaæfing Sunnudagur: Skvass Hugmyndin er að sunnudagsæfingin sé bara sólo-skvassæfing þar sem ég tek létt á því. Þ.e. æfing [...]

Eins og talað út úr mínu hjarta!

Posted: miðvikudagur 7. desember 2011 in Hugarfar, Motivation

Naglinn er meðettah: Heimsyfirráð eða dauði Þetta er bara nákvæmlega það sem ég vildi sagt hafa í síðustu færslu. Ég skransaði aðeins út fyrir, en leiðrétti það strax og málið dautt. Gamla-Heiða hefði farið í “allt ónýtt” fasann því þá var þetta spurning um “í ökkla eða eyra”, “duga eða drepast”, “nú eða aldrei”, “heimsyfirráð [...]

Helgin – Planað svínarí og hreyfing

Posted: mánudagur 5. desember 2011 in Hugarfar, Matarræðið

Á laugardaginn fór ég út að borða með góðum hópi fólks til að halda upp á stórafmæli bestu vinkonu minnar. Ég hafði ákveðið að þessi máltíð myndi vera út fyrir plan. Ég sparaði aðeins átið yfir daginn (veit ekki hversu skynsamlegt það er) og borðaði síðan af bestu lyst um kvöldið. Hvítvín og kokteill fékk [...]

Vigtun – Vika 49

Posted: laugardagur 3. desember 2011 in Árangur, Mælingar, Vigtanir

-2,5 kg þessa viku, vúhú! Næ 5 kg næst!

Að takast á við mótlæti

Posted: föstudagur 2. desember 2011 in Æfingadagbók, Hlaupahópur

Flestir mæta einhverju mótlæti á heilsubrautinni. Ég upplifi mitt oftast tengt mataræðinu en í gær var það tengt hreyfingunni. Það er afar óvenjulegt því yfirleitt er ég að drukkna í jákvæðninni og keppnisskapinu á æfingum og ef illa gengur segi ég yfirleitt: Ókei, þetta kemur næst. En gærdagurinn var frábrugðinn. Ég fór á hlaupaæfingu í [...]

Rífandi gangur

Posted: fimmtudagur 1. desember 2011 in Hugarfar, Motivation

Allt gengur eins og í sögu núna, meira svoleiðis! Stefni hratt í átt að -5 kg og vonandi næ ég því vel fyrir jól. Ég er klettur í mataræðinu og ræktin er í þvílíkum fíling.  Af hverju er þetta ekki alltaf svona? Ætla í það minnsta að reyna að viðhalda þessari frábæru tilfinningu eins lengi [...]