Um
Tilgangur þessarar síðu er fyrst og fremst aðhald fyrir sjálfa mig. Ég er einbeitt í því að ná markmiðum mínum; að léttast en þó viðhalda vöðvamassa og komast í betra form. Til þess að ná þessum markmiðum borða ég hollan mat, stunda reglulega hreyfingu. Ég lyfti, hleyp, og stunda aðra fjölbreytta þjálfun.
Í gegnum þetta blogg mun ég skrásetja ferðalag mitt að betri heilsu, betra formi og betri líðan.
Ummæli
Sæl Heiða.
Ég var að finna bloggið þitt fyrir ekki svo löngu og ég stend sjálf í svipuðum sporum og þú. Mér fannst svona kurteisi að kvitta á síðuna hjá þér til að skýra “fjöldi óþekktra flettinga”. Takk fyrir skemmtilega pistla og að leyfa netverjum að fylgjast með þér. Gangi þér rosalega vel að ná þeim markmiðum sem þú hefur sett þér.
Kveðja Anna
Takk fyrir innlitið Anna og gaman að heyra. Gangi þér sömuleiðis vel.