Æðislegt melónusalat með fetaosti
0
Þetta salat hljómar eins og hvert annað salat, en það leynir á sér. Mér finnst það alveg SVAKALEGA gott! Fínt í hádeginu.
Efni
150 g vatnsmelóna (meira ef þið viljið en 150 g er einn ávöxtur)
100g salat eftir smekk(t.d. iceberg eða sambærilegt)
1/2 rauðlaukur (ca. 50 g)
50 g Dala-fetaostur í sneiðum
Fersk sítróna
Aðferð
Skerið vatnsmelónu, salat og rauðlauk gróft niður. Leggið rauðlaukinn í skál og kreistið vel af sítrónu yfir. Látið liggja á rauðlauknum í nokkrar mínútur. Setjið þetta allt í skál og bútið fetaostinn gróft niður út í salatið. Gott er að bæta 10-15 g af olíu út á salatið.
![]()
Stækka mynd