Ávaxtasúpa með blönduðum ávöxtum
Efni
300 g ávextir í allt, t.d. bláber, sólber, jarðarber eða hindber
fljótandi sætuefni
börkur og safi af ½ ósprautaðri sítrónu
ca ½ – 1 tsk kartöflumjöl
30 g gróft brauð
ca ½ tsk fennelfræ
Aðferð
Setjið berin í pott með smávegis af sítrónusafanum og hitið hægt og sjóðið í 5 mín. Maukið berin og setjið sítrónusafa í og sætuefni. Hrærið kartöflumjölinu út í smá kalt vatn. Þegar súpan er alveg við að sjóða, slökkvið á hellunni og kartöflumjölið hrærist í þangað til súpan er tilbúin.
Skerið brauðið í teninga og ristið á þurri pönnu með fennelfræjunum. Berið fram súpuna með brauðteningunum.
ATH
Búðu til súpuna af þeim berjum sem þú átt í frysti. Það er gott að fá sér berjasúpu á veturna.
TIPS
Það má sleppa kartöflumjölinu og sleppa brauðinu og bera fram súpuna með smá sýrðum rjóma og strá smá kanil yfir.