Eplabaka
Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér finnst best að sleppa sýrða rjómanum og fá mér eplabökuna út á ddv-vanilluís. Ef ykkur vantar lítil form sem passa fyrir eina svona uppskrift þá er hægt að fá svoleiðis í Söstrene Grene í Smáralind. Ég fann mér þar lítil hringlótt form sem passa fullkomnlega fyrir þetta.
Efni
1 epli í sneiðar
2 tsk plómumarmelaði
kanill
Deig
Efni
15 g majónes
15 g hveiti
10 g undanrennuduft
Sósa
Efni
125 g sýrður rjómi 10%
kanill
Aðferð
Setjið eplið í lítið eldfast mót, dreifið marmelaðinu yfir eplið og stráið kanil yfir. Blandið majónesi, hveiti og undanrennudufti og stráið yfir eplin. bakið við 200 gráður í ca 15 mín með álpappír yfir svo hún brenni ekki. Berið fram með köldum sýrðum rjómanum. Stráið smá kanil ofan á sýrða rjómann.