Gulrótarkonfekt
Þetta hef ég gert áður. Mér finnst þetta mjög gott og ekta nammi til að svala kolvetnalöngun. Best að geyma bara í frysti og taka út nokkrum mínútum áður maður borðar þetta. Þá er konfektið svolítið seigt og gott.
Efni
250 g gulrætur rifnar
80 g undanrennuduft
15 g kakó
120 g fínt saxaðar sveskjur
30 g sykurlaust appelsínumarmelaði
1 tsk vanilluessens
Glassúr
Efni
15 g kakó
1 tsk sæta
smá vanilluessens (eða aðrir eftir smekk)
3-4 tsk vatn
Aðferð
Öllu blandað saman, sett í form með álpappír yfir og bakað í ca 2 tíma við 150 gráður. Álpappírinn má taka af síðustu 15 mín. Glassúrinn er settur yfir þegar kakan er orðin köld. Skerið kökuna í 24 konfektstykki og frystið.
4 stk af gulrótarkonfekti er 1x í extra, ½ ávöxtur og 5 g sulta.
Ummæli
Vá! Þessi er æði. Bjargaði deginum hjá mér