Heit súkkulaðisósa

Þetta er ein af þessum klassísku DDV-súkkulaðisósum. Það er þó algjör óþarfi að nota klípuna. Oft tek ég bara 15 g kakó, undanrennuduft eftir þörfum og svo heitt vatn og sætuefni. Það er æðislegt að setja piparmynntuessens út þessa sósu!

Edit: Breytti uppskriftinni aðeins sbr. komment að neðan

Efni
5-10 g klípa
15 g kakó
15 g undanrennuduft
sætuefni
soðið vatn / heitt kaffi
bragðefni eftir smekk

Aðferð
Hrærið kakói og undanrennudufti saman ásamt sætuefni og klípu. Þynnið með smá sjóðandi vatni.
Borið fram með t.d. jarðarberjum og banana sem búið er að hella yfir vanillusósu, t.d. úr sýrðum rjóma og vanilluessens. Hellið svo heitri súkkulaðisósunni yfir í lokin.

Ummæli
  1. barbietec says:

    þessi uppskrift er ekki alveg rétt :)

    þessi er miklu betri
    5-10g klípa
    15 g 100% kakó (skiptir máli að hafa 100% kakó, alls ekki bökunarkakó)
    15g undanrennuduft
    sætuefni
    vanilludropar
    smá kaffi (má sleppa)
    Soðið vatn

    Hræra saman kakó og undanrennuduft, setja restina út og hræra saman með heitu vatni. Algjörlega óþarft að nota örbylgjuofninn :) Ef þú vilt þykka sósu þá lítið vatn, annars meira :)

    En 6 tsk af klípu er alllltof mikið bæði er það fituskammtur fyrir 2 daga og svo er alltof lítið af kakó- úff úff úff heheheh…. var þeta ekki vont ????

  2. Heidi says:

    Heheh heyrðu hérna eimir eftir af einhverju gömlu. Þessi uppskrift er af blaði sem ég fékk á fund held ég.

    6 tsk af klípu á að jafngilda 30 g þannig að það ætti að vera 1 dagskammtur. Er það ekki? Ég mæli aldrei í teskeiðum heldur í grömmum og nota einmitt 15 g kakó. Ég sleppi oft klípunni eða set 5 g :) Obbobbobb.. þarf að taka mig á í uppskriftameðmælum :p

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s