Kalkúna/kjúklingabollur með jurtum
0
Efni:
170 g kalkúnabringa
smávegis smátt saxað rautt chili
nokkur basilikkublöð, smátt söxuð
ca ½ lúka hökkuð steinselja
ca 25g hakkaður laukur
smá sítrónusafi
Aðferð:
Setjið bringuna í minihakkara og maukið í fars, bætið restinni í farsið, hrærið vel saman og látið standa í kæliskáp í ca ½ klst. Formið farsið í litlar bollur og gegnumsteikið þær. Berið fram með salati að ósk, t.d. kínakáli og icebergsalati.
Dressing:
Efni:
100 g sýrður rjómi 10%
safi úr ½ – 1 sítrónu
½ – 1 búnt graslaukur
salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
Hrærið dressinguna saman og smakkið til. Berið bollurnar fram volgar með salati og dressingu.
TIPS
Berið fram 125g sykurlausar, sultaðar rauðbeður í teningum og smá sinnep með réttinum.