Kjúklinga-enchilladas
Hráefni:
Kjúklingur
Rifinn ostur (magur)
1 laukur
Hvítlaukur (fjöldi rifja eftir smekk)
Hakkaðir tómatar (1 dós eða mauka sjálf)
Chili duft (set um 4 tsk… allt eftir smekk)
Salt&Pipar
Sætuefni
Tortillabrauð, lítil
Aðferð:
Skerið kjúklinginn í litla bita (munnbitastærð) og steikið á pönnu, kryddið eftir smekk með salti og pipar.
Hakkið laukinn og hvítlaukinn og glærið í stórum potti. Bætið svo tómötunum í þennan pott. Kryddið með chili, salti og pipar og látið malla. E.t.v. gott að bæta smá sætu út í.
Takið nú 1/4 af ostinum og 1/4 af sósunni og blandið saman við kjúklinginn. Setjið til hliðar í sér skál.
Þegar þessu er lokið er hver og ein tortilla tekin, dýft ofan í pottinn í sósuna og svo skellt beint á pönnu og steikt.
Fyllingin er svo sett á tortilluna og rúllað upp í pönnuköku.
Setjið allar rúllurnar í fat, stráið restinni af ostinum yfir og bakið í ofni í um 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Hlutföllin milli kjúklings og osts ákveður bara hver fyrir sig, en ég tók 60 g af kjúklingi og 75 g af mögrum osti og vafði inn í 2 tortillur. Þetta er mjög mettandi og vel útilátið. Það kemur mjög gott bragð af því að steikja tortillurnar upp úr tómatsósunni.