Lambakjöt með grænmeti
Efni
120-170 g lambakjöt
salt og pipar
2-3 lauf hvítlaukur
150 g sykurbaunir
100 g rauð paprika
1 appelsína, ósprautuð (safi 1 ½ dl)
timian
1 tsk olía til að steikja úr
75 g soðin hrísgrjón
Aðferð
Skerið hvítlaukinn í tvennt eftir endilöngu. Hitið olíuna á pönnu, brúnið hvítlaukinn og takið síðan upp úr. Skreið sykurbaunirnar í lítil stykki og skerið paprikuna í stærri bita. Setjið á pönnuna og brúnið í sömu olíu í ca 10 mín og bætið svo hvítlauknum út í.
Pressið appelsínuna, skerið börkinn í strimla og setjið á pönnuna ásamt timian. (Geymið smá í skreytingu). Látið réttinn smásjóða undir loki í 5 mín. Passaðu að það sé nógur vökvi, annars setjið smá vatn í. Steikið lambakjötið á grillpönnu, kryddið með salti og pipar og skerið í sneiðar.
Borðið með 75 g af hrísgrjónum og grænmetinu.
hljómar vel