Lasagna
0
Kjötsósa
Efni170 g nautahakk (fitulaust)
50 g laukur
2 lauf hvítlaukur
100 g gulrætur
50 g púrra í sneiðum
½ – 1 dós af hökkuðum tómötum
salt og pipar
timian og basilikum
Bechamelsósa
Efni2 ½ dl undanrenna
3 tsk maísstífelsi
salt og pipar
smá muskat
30 g þurrar lasagnaplötur (= 75 g soðið pasta)
Aðferð
Kjötsósan: Skerið lauk og gulrætur í smá teninga og púrru í sneiðar. Steikið kjötið og setjið laukinn út í. Pressið hvítlaukinn í, hakkaðir tómatar í og síðan grænmetið í líka. Látið smásjóða í 10 mín og kryddið síðan réttinn.
Sósa: Látið mjólkina sjóða, jafnið með maíssterkju og kryddið.
Leggið í eldfast mót til skiptis lasagnaplötur, kjöt og sósu. Bakið í ofni við 200 gráður í ca 45 mín.