Lax fyrir letihauga :)
0
Þetta geri ég nánast alltaf á mánudögum. Þetta er nú ekki mikil uppskrift, en fyrir þá sem eru óvanir að elda lax (eins og ég var) þá gæti þetta verið ágætis byrjun
Efni
1 laxaflak
Krydd (jurtasalt, malaður pipar og sítrónusafi)
Aðferð
Setjið laxinn í eldfast fat (og bökunarpappír í botninn á fatinu ef þið viljið), kryddið smá með jurtasalti og pipar og hellið vel af sítrónusafa yfir. Setjið inn í ofn á 200°C. Laxinn er tilbúinn eftir ca. 20-25 mín. 10 mín áður en þið takið hann út er gott að bæta meiri sítrónusafa á.
Ég geri oft franskar (kartöflubátar) til að hafa með eða bara hrísgrjón.
Einfalt og gott:)