Lax með piparrót og steiktu epli
Efni
170 g lax (roðlaus)
ca 25 g sýrður rjómi 10%
rifin piparrót
safi og börkur af sítrónu
ca 2 msk klipptur graslaukur
salt og pipar
100 g rauðlaukur
1 súrt epli
1 tsk olía til að steikja úr
Aðferð
Blandið sýrða rjómanum með piparrót, sítrónusafa, sítrónuberki, fínklipptum graslauk, smá salt og pipar.
Leggið laxinn í eldfast fat. Setjið blönduna ofan á og bakið laxinn í heitum ofni við 220 gráður í ca 15 mín. Setjið ef til vill fatið í ísskápinn í ca ½ klst áður en þið bakið fiskinn.
Afhýðið laukinn og skerið í bita. Takið kjarnann úr eplunum og skerið í teninga. Hitið fituna á pönnu og steikið laukinn ljósbrúnan. Bætið eplabitunum á og steikið við mikinn hita.
Berið laxinn fram með lauk og eplablöndu.
TIPS
Skreytið réttinn með ferskri steinselju.