Lifrarpaté
Ég hef prófað þessa einu sinni. Útkoman var ekki góð (sennilega vegna kunnáttuleysis míns). Ég hugsa að ég hafi bakað lifrina allt of lengi, því hún varð mjög þurr og þar að auki var ég með dilkalifur… og mér líkar hún ekki nógu vel. Ráðgeri að prófa þetta aftur síðar. Einnig kom á óvart hvað lifrin jók rúmmálið mikið þegar hún fór í matvinnsluvélina… það semsagt verður ótrúlega mikið úr litlu.
Efni
80 g kjúklingalifur
25 g laukur
50 g gulrætur
50 g kúrbítur
3 tsk hveiti
krydd og smá steinselja
Aðferð
Hakkið lifrina og blandið í skál með smátt skornum lauk, gróft rifnum gulrótum og kúrbít. Bætið út í hveiti, ferskri steinselju og kryddi. Setjið í lítið eldfast fat og bakið í ofni í ca 40 mín við 200 gráður. Borðið heitt eða kalt á 30 g af brauði, 50 g af sykurlausum rauðbeðum og 125 g af gulrótum t.d.