Óvenjulegt coleslaw með kjúkling
0
Efni
120 g kjúklingabringa
sítrónusafi
salt og sítrónupipar
½ tsk olía til að steikja úr
Coleslaw
Efni
50 g rauðkál fínt skorið / í ræmur
50 g gróft rifnar rauðrófur
50 g gróft rifnar gulrætur
50 g gróft rifin sellerírót
1 gróftrifið sætt epli
10 g olía
sítrónusafi
salt og pipar
hökkuð steinselja
Aðferð
Leggið kjúklinginn í mareneringu í sítrónusafa í ca 1 klukkustund. Hitið olíuna á pönnu og steikið hér eftir kjúklingabringuna í nokkrar mín á báðum hliðum við lágan hita, þangað til hún er meyr. Pakkið í álpappír og látið standa smá stund. Setjið allt grænmetið í skál. Blandið dressing af olíu, sítrónusafa, salt, pipar og hakkaðri steinselju saman og hellið yfir grænmetið.
Skerið kjúklinginn í sneiðar og berið fram með coleslaw.