Rúlluterta

Efni
2 egg
3 tsk kartöflumjöl
3 tsk hveiti
2 tsk lyftiduft
2 msk strásæta

Aðferð
Þeytið egg og strásætu mjög lengi, að minnsta kosti í 10 mín. Hrærið lyftidufti, hveiti og kartöflumjöli varlega í eggjamassann. Fletjið út á bökunarpappír og bakið í 10 mín við 190 gráður. Setjið á nýjan pappír og smyrjið t.d. með maukuðum jarðarberjum með 2 blöðum af matarlími. Rúllið kökunni strax saman og látið standa til næsta dags.

Annar möguleiki
Önnur fylling á rúllutertuna gæti verið 5 g af kakói sett í degiið og balikremið sett sem fylling.

BALI-krem
Efni

1 dl undanrenna
62 g sýrður rjómi 10%
1 tsk sætuefni
1 tsk bali essens
1 tsk vanilla
2 matarlím

Aðferð
Blandið öllu saman nema matarlíminu sem þarf að leggja í kalt vatn. Bræðið í vatnsbaði og hellið í blönduna. Ef maður rúllar blautu viskustykki um deigið þegar það er heitt getur maður rúllað kökunni saman aftur þegar hún er köld. Prufið líka að setja jólakrydd í deigið og gerið appelsínukrem eða smjörkrem sem fyllingu.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s