Steiktur fiskur með sellerímús
Efni
170 g fiskflak
salt og sítrónupipar
sítrónusafi
1 tsk olía til að steikja úr
Sellerímús
Efni
300 g sellerí
safi og börkur frá lífrænni sítrónu
100 g sýrður rjómi
salt og sítrónupipar
5 g viðbit
klippt og fersk steinselja
Aðferð
Hitið olíuna á pönnu og steikið fiskinn ljósbrúnan á báðum hliðum.
Kryddið með salti og sítrónupipar og með smá sítrónusafa.
Afhýðið sellerírótina og skerið í lítil stykki. Setjið í pott með smá vatni, sítrónusafa og sítrónuberki og sjóðið meyrt.
Hellið síðan vatninu frá og maukið sellerírótina með gamaldagskartöflustappara eða þeytið með þeytara.
Stappan má vera svolítið gróf.Bætið sýrða rjómanum í, salti og sítrónupipar og viðbiti. Berið fiskinn fram með sellerístöppunni, skreytt með steinselju.
TIPS
Það má nota hvaða fisk sem er.