Vatnsdegisbollur
0
Efni
30 g létt-majónes
½ dl vatn
45 g hveiti (7 x í extra)
salt
sætuefni
vanilla
1 egg
½ tsk lyftiduft
Aðferð
Hrærið allt nema egg og lyftiduft saman í potti í þéttan massa og kælið. Eggið og lyftiduftið hnoðast í kalt deigið. Skiptið deiginu í tvennt og setjið á bökunarpappír. Hitið ofninn í 190 gráður (mikilvægt!) og bakið í 35-40 mín. Áríðandi er að hurðin á ofninum sé lokuð allan tímann því annars falla bollurnar saman. Fyllið bollurnar með kremi og sultu.
Krem
Efni
1 dl undanrenna
maizena
vanillukorn
sætuefni
smá gulur matarlitur
sýrður rjómi 10%
Aðferð
Sjóðið allt nema sýrða rjómann og kælið. Bætið svo sýrða rjómanum við.