Ýsa með tómatsósu og nípu

Efni
170 g ýsuflök

Tómatsósa – Efni
1-2 rif hvítlaukur
biti af engiferrót
ca ½ tsk koriander
200g afhýddir tómatar
ca 1 tsk sítrónusafi
150 g nípa
ca 1-2 dl kjúklingakraftur
smávegis saffron
1 tsk olía til steikingar
100 g sýrður rjómi 10%

Aðferð
Saxið hvítlauk, afhýðið og rífið engiferrótina. Hitið helminginn af olíunni á pönnu ásamt hvítlauk og engifer, steikið stutta stund og setjið koriander, tómatana og sítrónusafa út í. Sjóðið saman í 8-10 mínútur og maukið síðan í minihakkara. Skrælið nípuna og skerið í litla teninga. Setjið í pott ásamt kjúklingakrafti og saffran, sjóðið meyrt og hellið í sigti. Setjið restina af olíunni á pönnuna og steikið fiskinn ljósbrúnan á báðum hliðum þar til hann er meyr. Berið fiskinn fram með tómatsósunni, nípu og sýrðum rjóma.

TIPS
Hægt er að nota allan hvítan fisk í þennan rétt.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s